[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Re: Femínista- og pillufréttir (Bjarni Rúnar)

2003-04-02 11:22
Ég held þú þjáist af blindu menntamannsins. :-)

Karlremba er enn til og það er mjög margt að samskiptum kynjanna - það er full þörf fyrir að brjóta niður fordóma og staðalmyndir og í raun fullt af verkefnum fyrir "feministafélag". Það er nefnilega að miklu leyit búið að leysa "einföldu" vandamálin, jafnrétti gagnvart lögum og þessháttar. Að breyta viðhorfum fólks er miklu flóknara mál!

Það er einmitt á þeim sviðum sem ég er oft ósammála þessum háværu íslensku feministum - svo margt í þeirra baráttu beinist á neikvæðan hátt að konum. Þær eru á móti fegurðarsamkeppnum, þær eru á móti klámi, þær eru á móti vændi, þær eru á móti auglýsingum sem sýna konur sem kynverur. Að gagnrýna þessa hluti jafngildir harðri gagnrýni á ákveðnum hópum kvenna, sem eitt og sér er ekki beint til þess fallið að auka þá virðingu sem konur njóta yfir heildina.

Annað sem liggur mér á hjarta er að mér finnst að eitt helsta baráttumál kvenna ætti t.d. að vera að láta karlmönnum líða betur með sjálfa sig - í staðinn fyrir að vera að ala upp í mönnum sektarkennd fyrir að vera karlkyns, eins og feminismi hefur átt það til að gera.

Rök mín fyrir þessu eru þau að karlmaður sem beitir ofbeldi eða upphefur sig með því að niðurlægja aðra gerir það af því að hann er óhamingjusamur, óöruggur og hræddur (sbr. pistil Sigga Pönk í dag). Auðvitað gildir það sama um konur, en þetta virðist algengara hjá körlum, eða virðist a.m.k. oftar leiða til líkamlegs ofbeldis og árásarhneygðar hjá körlum en konum. Ef karlmönnum liði almennt betur myndu þeir einfaldlega ekki finna þörf hjá sér til að beita konum ofbeldi eða annarskonar kúgun.

Á svipaðan hátt er mjög brýnt að styrkja sjálfsmynd kvenna. Ég þekki held ég enga stelpu sem ekki hefur áhyggjur af holdafarinu eða einhverju sambærilegu. Meðalkonan er óframfærnari en meðalkarlinn. Í "frjálsu hagkerfi" nægir þetta til að viðhalda launamismun og kúgun - þessu þarf líka að berjast gegn. Ég veit ekki alveg hvernig á að fara að því, en ég veit að það er mikilvægt. :-)

Allskonar svona dót sem maður veltir fyrir sér. Feministafélagið er allavegna með þessi mál (eða tengd mál) á stefnuskránni... sem er meira en hægt er að segja um flesta aðra.

     Re: Re: Re: Femínista- og .. (Sonja Richter)
         Re: Re: Re: Re: Femínista-.. (Bjarni Rúnar)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni