[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Re: Nauðganir fleiri og grófari (Már Örlygsson)

2003-03-02 21:55
Hei, vá! Alvöru tröll. Orðsnilldin og stókostleg röklistin segir allt sem segja þarf.Æði. :-)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Re: Nauðganir fleiri og grófari (Bjarni Rúnar)

2003-03-03 01:47
Hvort sem ég er fordómafullur eða ekki, þá breytir það því ekki að Guðrún vísaði hvorki til rannsókna né vísinda þegar hún hélt fram að vaxandi ofbeldi væri "klámvæðingunni" að kenna. Ég var á þessum fyrirlestri og fullyrðingar mínar um þetta tiltekna atriði byggja á reynslu, ekki fordómum.

Þegar ég sagði "alvöru rannsóknir" var ég ekki að gefa í skyn að rannsóknir sem styðja kenningar Guðrúnar (sem eru alveg til þó hún hafi ekki vitnað í neitt slíkt) séu eitthvað plat - ég var bara að benda á að það eru til líka til kenningar og rannsóknir sem sýna fram á hið gagnstæða. Meðan staðan er þannig finnst mér fólk þurfa að rökstyðja mál sitt ef það á að taka mark á því - Guðrún rökstuddi ekki mál sitt og þessvegna gagnrýni ég athyglina sem hún fær. Ég taldi mig reyndar hafa gefið það til kynna með næstu setningu á eftir þessari um alvöru rannsóknirnar, en þér kannski sást bara yfir það.

Þessi kenning - að "klámvæðingin" valdi auknu ofbeldi - hefur vaðið uppi í fjölmiðlum undanfarna daga, nánast án neinnar gagnrýni. Þessi kenning hefur verið vægast sagt umdeild síðan hún kom fram erlendis og það er sérkennilegt að Íslendingar virðist tilbúnir til að taka henni bara sem sjálfsögðum hlut án neinnar umhugsunar.

Ef lesendur hafa áhuga á að kynna sér fleiri hliðar á þessum málum heldur en eru í tísku hérlendis þessa dagana, þá mælir Unnur feministakonan mín með bókinni "XXX - A Woman's Right To Pornography" eftir Wendy McElroy. Svo mæli ég með greininni sem ég vísaði á í viðbótinni minni - hún er stutt en virðist vel unnin og tekur einmitt fyrir og gagnrýnir margar heimildirnar sem háværu íslensku feministarnir hafa verið að vitna til: Dvorkin og félaga.

Og ef þú telur þær fullyrðingar hafnar yfir gagnrýni og umræðu... tjah, þá er ég allavegna ekki sá eini sem er fordómafullur!

Már: Tröll eru svo skemmtileg, hvað ertu að væla?! ;-)

     Re: Re: Re: Nauðganir flei.. (Freyr)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni