[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
Mér fannst sömuleiðis pirrandi að Guðrún dró upp á glæru komutölur á neyðarmóttökuna fyrir þau ca. tíu ár sem þessi þjónusta hefur verið til staðar og benti á hversu mikið tímarnir hafa versnað með þeim rökum að komum hefði fjölgað og það margfalt á fyrstu árunum. Ég átti erfitt með að sjá hvað það ætti að sanna þar sem mér finnst eðlilegt að sjá aukningu í komum á nýja deild, það hlýtur jú að taka tíma að gera fólk meðvitað um að þessi þjónusta sé til og að konur eigi að nýta sér hana. Fræðsla um nauðganir og hvernig maður eigi að bregðast við hefur verið stóraukin á síðustu árum og er það vel. Ég held hinsvegar að tölur frá lögreglunni hefðu. þrátt fyrir að konur séu ekki nógu duglegar að kæra, verið marktækari í þeim tilgangi að leggja mat á hvort heimur versnandi færi.
En hey, hvað veit ég, ég er víst bara svo heilaþvegin af karlaveldinu að ég ber ekki skynbragð á eigin kúgun...
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
(Þetta innlegg skrifaði Salvör Gissurardóttir, sbr. texta hér -bre)
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]