[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Re: Klám og ofbeldi og skór (Bjarni Rúnar)

2003-03-10 23:17
Sýnist þér það vera að meiða hvort annað? Og er það vandamál?

Svarið í báðum tilfellum er væntanlega "fer eftir myndinni".

En ólíkt "bönnum allt sem Kolbrúnu Halldórs finnst ekki persónulega fallegt og gott" liðinu, þá þykist ég ekki svo merkilegur að geta sagt til um hvað öðrum má og má ekki finnast gott. Þótt það sé til ýmislegt sem ég hef lítinn áhuga á að gera sjálfur þá finnst mér rangt að banna öðrum það.

Meðan fólk virðir óskir annarra, þá finnst mér lögin eigi ekki að skipta sér af sama hverskonar aðstæður (inni, úti, uppá sviði, inní stúdíói) og hjálpartæki verða fyrir valinu (vídjóvélar, dildóar, handjárn, fjaðrir, heilir kjúklingar...).

Að rugla saman ofbeldi og klámi er ekkert annað en gróft tæki fólksins sem vill stjórna svefnherbergisvefnum okkar. Það pirrar mig.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni