[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



7000 veðuráhugamenn? (Hrafnkell)

2000-12-20 18:00
Mér finnst dásamlegt hvernig Halomenn segja að þeir hafi fundið 7000 netföng á vefsíðum tengdum veðri. Eru virkilega margar vefsíður tengdar veðri á Íslandi? Eru svona margir sem opinbera veðuráhugasinn á sinn á Íslandi.
Eða var þetta sagt af manni sem fattaði að hann pissaði í skóna sína með þessari "bráðsnjöllu" auglýsingaaðferð?


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

kaup og sala (Már)

2000-12-20 19:48

Björn hjá Halo ehf ver framferði sitt með orðunum:

    ..."í póstinum hafi ekki verið hvatt til neinna viðskiptasambanda, kaupa eða sölu."

Þetta er málinu óviðkomandi vegna þess að lögin um fjarsölu og samninga taka sérstaklega á markaðssóknum - sem þessi fjöldasending var.

Ég vitna í Lög um hússölu- og fjarsölusamninga, kafla III, 14 gr.

    "Hafi neytandi ekki tilkynnt sig til skrár Hagstofu Íslands, sbr. 2. mgr., eða áskrifandi fjarskiptaþjónustu óskað eftir sérmerkingu í símaskrá í samræmi við ákvæði fjarskiptalaga og seljandi sendir honum í beinni markaðssókn tölvupóst ber að gefa neytanda kost á að veita samþykki sitt fyrir áframhaldandi notkun á þeirri fjarskiptaaðferð. Samþykki neytandi ekki sérstaklega áframhaldandi sendingar með tölvupósti eru þær framvegis óheimilar."

(Feitletrunin er mín.)

Ef ég skil lögin rétt þá jafngildir "markaðssókn" auglýsingaherferð og þarf ekki endilega að fela í sér beina sölu.

Uppfært af bre: Lagaði blockquote vandann.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Spam er vont (Spörri)

2000-12-22 17:11
Þessi grein sást á slashdot og útskýrir af hverju spam er vont (halo ættu að lesa þetta) og hvernig er hægt að verja sig. Mæli með henni fyrir aðra en Halo líka!


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni