[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Re: Re: Re: Sverri svarað: siðferði þess að tengja (Már Örlygsson)

2002-12-10 16:41
Elsku Sverrir, fyrirgefðu ef ég móðgaði þig. Það var óvart. Mér hefur bara fundist þú og þín persóna hafa fengið dáldið harða útreið gegnum tíðina á vefnum og mér hefur þótt það leiðinlegt upp á að horfa. ...en nóg um það.

Sverrir, þú bregður upp myndlíkingu: "Starfsmaður í fyrirtæki getur hengt tilkynningu á vegg og það telst vera opinber birting, en þar með er ekki sagt að Mogginn hafi rétt á að birta hana."

Ef viðkomandi veggur er útveggur Alþingishússins eða einhver veggur í Austurstrætinu, þá er þetta vissulega opinber birting sem má líkja við skrif á opna vefsíðu.

Aftur á móti, ef veggurinn er innan veggja fyrirtækisins, þá fæ ég ekki séð að birtingin sé opinber, því lesendur þurfa að hafa aðgang að húsakynnum fyrirtækisins. Þá má helst líkja henni við skrif á læstri vefsíðu, sem ég get engan veginn samþykkt að séu opinber skrif á sama hátt og skrif á opinni vefsíðu.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Re: Re: Re: Sverri svarað: siðferði þess að tengja (Már Örlygsson)

2002-12-10 16:59
P.S. þetta er ótrúlega skemmtileg siðferðisklemma þessi spurning hvað á að gera við persónulega hluti sem birtast á almannafæri.

Hvað á að gera við hluti eins og myndaalbúmið mitt?

Ég er meðvitaður um að ég set myndirnar mínar á opinn vefþjón, þar sem alþjóð getur séð þær. Þetta er meðvituð ákvörðun sem í felst ákveðin áhætta - þ.e. ég treysti því að fólk noti þetta ekki gegn mér.

Hins vegar get ég ekki gert neina kröfu á þá sem skoða myndirnar. Með því að setja myndirnar á vefinn er ég búinn að sleppa þeim lausum út í hina opinberu samfélagsumræðu.

Ég get ekki treyst því að enginn meðhöndli myndasafnið mitt (linkar, umtal, etc.) á einhvern hátt sem misbýður tilfinningum mínum - til þess þyrfti fólk að vera skyggnt og þekkja mína sérviskulegu siðferðisvitund og tilfinningasemi. Það eina sem ég get "ætlast til" siðferðislega er að fólk noti myndirnar mínar ekki gegn mér og sé viljandi dónalegt og meinfýsið. Þannig getur mér sárnað ef ég sé að fólk er að *reyna* að særa mig eða lítillækka, jafnvel þótt mér finnst það sem gert var ekkert óþægilegt þannig séð - og öfugt... Viðleitnin skiptir mig mestu.

Ég veit ekki hvort/hvernig þetta tengist þessum pælingum Sverris, en þetta eru þær pælingar sem ég hef farið í gegn um sjálfur.

Ég held að mörkin milli þess sem er prívatt og þess sem er opinbert séu að verða sífellt óljósari, og við eigum eftir að fara í gegnum mjög langt og strangt lærdómsferli í sambandi við meðhöndlun þessara hluta. Bæði eigum við eftir að verða sár í einhverjum tilfellum, og líka læra að slappa af þegar sviðsljósið lendir á okkur þegar síst skyldi.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Re: Re: Re: Sverri svarað: siðferði þess að tengja (Már Örlygsson)

2002-12-10 17:08
P.P.S. til að fyrirbyggja allan misskilning, þá er rétt að taka fram að við erum alveg 100% sammála um þætti sem snerta ólögmæta afritun, endurbirtingu og dreifingu á efni eftir aðra á netinu.

1) Afritun efnis og endurbirting == höfundarréttarbrot og ólögleg dreifing.

2) Linkun = umtal, tilvísun (og falla því vart undir höfundarlög, nema að því leyti sem snertir almennt velsæmi, mannorð, o.þ.h.)

Ég held að við séum bara að tala um 2) og þau siðferðisatriði sem snerta opna umræðu um fólk og málefni.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Re: Re: Re: Sverri svarað: siðferði þess að tengja (Anonymous)

2002-12-10 18:03
Líkingin við auglýsingatöflu er mjög góð. Og umhugsunarverð. Ef að fyrirtæki myndi setja tilkynningu á auglýsingatöflu í andyri um gjaldþrot sitt, þá hugsa ég að fjölmiðill hefði siðferðislegan rétt til að skrifa frétt um málið. Hún var kannski ekki ætluð fjölmiðlum, en þegar er búið að tilkynna opinberlega um málið er það orðið fréttaefni. Rétt eins og ef haldinn er starfsmannafundur með tilkynningu um gjaldþrot. Þá er tilkynningin opinber og þess má vænta að fréttir berist af fundinum sama kvöld. Það er spurning hvað átt er við með því að fjölmiðlar geri sér mat úr bloggi. Deiglan linkaði t.d. á blogg Hilmu, en gerði sér ekki á nokkurn hátt sérstakan mat úr því, nema verið var að benda á áhugavert lesefni. Öðru kann að gilda ef einhvers konar túlkun hefði verið lögð fram fyrir þá sem sáu. Svo var ekki í þessu tilfelli. Annars tek ég undir ummælin um dómgreind, smekkvísi og siðvitund.
     Re: Re: Re: Re: Re: Sverri.. (Svansson.net)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni