[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Re: Dapurleg sóun á bjór (Lubbi Tík)

2002-09-30 11:24
Erfitt líf...


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Dapurleg sóun á bjór (Gerða)

2002-09-30 11:40
Vesalings Bjarni að lenda í þessu....
Kannski gerðist þetta svona:
a)leiðindastelpan var búin að læra af reynslunni og sníkti fyrst bjór, áður en hún fór að vera verulega leiðinleg við væntanlegan bjórgjafa
b)hún tók bjórglas ófrjálsri hendi
Hvað fær annars stráka til að gefa ókunnugum stelpum bjór?
Hvað fær stelpur til að sníkja bjór? Ég skil það alls ekki.
Ég segi: Stelpur, kaupið ykkar eigin bjór! Fyrir jafnrétti, frelsi og bræðralag.
     Jafnrétti, frelsi og bræðr.. (Bjarni Rúnar)
         Re: Jafnrétti, frelsi og b.. (Svavar Muzak)
         Re: Jafnrétti, frelsi og b.. (Kari)
         Re: Jafnrétti, frelsi og b.. (Hrafnkell)


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Dapurleg sóun á bjór (Jósi)

2002-09-30 18:32
(stelpa keypti handa mér bjór um helgina :-) Ég hef lent í svipuðu: á einhverjum tónleikunum á Vídalín byrjaði stelpa (sem ég held reyndar að vinni þar) að húðskamma mig fyrir að vilja álver í Reyðarfjörð. Hún var alveg viss um að allir karlmenn vilji álver og konur ekki vegna þess að vinna í álveri sé bara fyrir karla. Þessvegna vilja bara karlmenn álver. QED Síðan biður hún mig um að splæsa á sig bjór eftir að hafa úthúðað mér í lengri tíma.


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Dapurleg sóun á bjór (Quarashi)

2002-10-01 09:45
isss hvað er að ykkur strákar?? þegar ég er á fylleríi langar mig bara að rífa kjaft!!
     Re: Re: Dapurleg sóun á bjór (Heiða)


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Dapurleg sóun á bjór (Unnur)

2002-10-01 17:09
Harhar... hún byrjaði á því, áður en hún réðst á þig bjarni að spyrja mig hvort ég væri alvöru pönkari eða bara tískuþræll. Held að skotapilsið mitt sem ég keypti btw. þegar ég var sautján ára krúttgella og er ennþá mun meira dúllulegt en pönkað, hafi verið henni þyrnir í augum. Hún talaði annars ekki nógu góða ensku/heyrði of illa til að það væri neitt gaman að bulla í henni... Fyrirtíðaspenna dauðans? (Við stelpur megum ýja að svona, alls ekki strákar btw....)


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Dapurleg sóun á bjór (Siggi Palli)

2002-10-02 15:00
Í fyrsta lagi á að ganga í burtu frá svona fólki og ekki svara því. Í öðru lagi, ef það fer ekki strax á að benda því á þann kost. Í þriðja lagi ef það fer samt ekki á að gera eftir farandi: lemja/hrækja/kalla á dyravörð og segja að viðkomandi hafi verið að ota hnífi að fólki.... :) það virkaði allavegana seinast þegar ég lenti í svona.


Up ]   [ Permanent URL ]

Nýtt í dagbókinni