[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Nánar um atlot! (Erna)

2002-07-30 00:34
Hæ, mbl.is þýddu fréttina sína greinilega beint upp úr Nature Science Update, en það er síða á vef vísindaritsins Nature, þar sem fjallað er um nýjasta nýtt í heimi náttúruvísindanna, á fréttaformi. Þetta er reyndar ekkert svakalega ýtarleg umfjöllun, en skemmtilegara að lesa þetta en hroðvirknislegan útdrátt/þýðingu hjá Mogganum. Hér er svo greinin. =)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Snerting: Bætir, Hressir Kætir. (Siggi Palli)

2002-07-30 22:12
Mannleg snerting er eitthvað sem er alger nauðsinn, reyndar er fyrsta sagan um að mannlegsnerting hefur verið notuð í lækningarskyni eld gömul. Í forn-Grikklandi c.a. 1000 til 1500 fyrir Krist, var gamall maður sem þjáðist allan sólarhringinn af verkjum og listarleysi. Sonur hans, þó þeim feðgunum færi ekki vel saman fór til læknis sem hét Mústínus og lýsti veikindum pabba síns. Mústínus vísvitandi gefur honum flösku af venjulegri olíu og segir honum að þetta sé OFUR-oflugt lyf og hann þurfi að bera þetta á bak föður síns á hverjum degi tvisvar á dag ellðar kallinn drepist. Jú jú 3 vikum seinna er ekkert að kallinum og þeim feðgum fer aftur vel saman. Þetta er líka ein af fyrstu skrásettu plasibo therapíum. Kannski finns ykkur þetta ekkert sniðugt en mér fanst þetta stórmerkilegt og nota þetta óspart á pabba minn þegar hann er að vera erfiður, tek í höndina á honum og klappa honum blíðlega á handarbakið og tala rólega í minni ómfríðu röddu :)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni