[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Re: Hvar er gott að giftast? (Anonymous)

2001-10-02 00:51
Hljómskálagarðurinn!


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Hvar er gott að giftast? (Arnarar)

2001-10-02 01:31
Ég mæli með ylströndinni í Nauthólsvík. Félög verkfræðinema og tölvunarfræðinema héldu nýnemapartý þar og um 100 manns mættu og þetta var snilld. Hinsvegar ræður veður töluvert miklu um hvað þetta sé mikil snilld..

Myndir hér og hér


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Hvar er gott að giftast? (Anonymous)

2001-10-02 09:06
Elliðaárdalurinn er snilld á sumrin og haustin. Ef annað hvort ykkar þekkið einhvern, eða eigið skyldmenni sem vinnur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, þá getur sá/sú hinn sami/sama sótt um að fá félagsheimilið í dalnum leigt fyrir lítið fé. (Aðeins leigt til starfsmanna.)
     Re: Re: Hvar er gott að gi.. (Már Örlygsson)


Up ]   [ Permanent URL ]

Svæði til að týnast (msn)

2001-10-02 09:15
Það eru fýsilegir staðir í heiðmörk sé keyrt nógu langt inní hana til að forðast óþjóðalýð og útilegumenn, annars má keyra framhjá álverinu í straumsvík sem leið liggur að keflavík en beygt nokkrum mínútum eftir að álfnykurinn er horfinn.  Þar var einu sinni útíhátið og er þetta svæði til lukku.


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Hvar er gott að giftast? (Brynja)

2001-10-02 13:29
Gróttu! Það væri snilld, falleg náttúra, nóg pláss, og við bætist spennan að sjá hvort allir gestir nái á svæðið áður en kemur flóð..
     Re: Re: Hvar er gott að gi.. (Auður)


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Hvar er gott að giftast? (Anonymous)

2001-10-02 13:31
Klambratún, rent-a-tent, eða Perlan..?


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Hvar er gott að giftast? (Brynja)

2001-10-02 13:47
Nei, GRÓTTU GRÓTTU!!!
     Re: Re: Hvar er gott að gi.. (Unnur)


Up ]   [ Permanent URL ]

Re: Hvar er gott að giftast? (Finnbogi)

2001-10-02 15:04
Ég var einu sinni í brúðkaupi á Lækjarvöllum (á leiðinni til Krýsuvíkur). Það var mjög fallegur og skjólgóður staður - alla vega að sumri til...
     Re: Re: Hvar er gott að gi.. (Anonymous)
         Re: Re: Re: Hvar er gott a.. (Brynja)
             Er skjól á Gróttu? (Bjarni Rúnar)
                 Re: Er skjól á Gróttu? (Már Örlygsson)
                 Re: Er skjól á Gróttu? (Brynja)
             Grótta (Már Örlygsson)
                 Re: Grótta (Unnur)
     Re: Re: Hvar er gott að gi.. (Zato)


Up ]   [ Permanent URL ]

Árbær (Sonja)

2001-10-04 11:36
Hvað með gömlu Árbæjarkirkjuna (ég tala ekki um ef þú færð rafveitusalinn). "ekkert er fegurra' en vorkvöld í Reykjavík". Góð dagsetning (bróðir minn og páfagaukurinn eiga bæði afmæli þennan dag).


Up ]   [ Permanent URL ]

Nýtt í dagbókinni