[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Re: Re: Diary: More on the login system (Bjarni Rúnar)

2001-09-26 14:46
Mig hefur langað lengi til að skrifa meira en ég hef gert, en hef einmitt ritskoðað það því það hefur verið of persónulegt. Nú þarf ég ekki að ritskoða mig lengur, bara setja efni í viðeigandi flokka eftir því hvort það er fyrir alla, suma eða bara sjálfan mig.

Auðvitað eru ekki allir eins og ég... og þér er btw. alveg guðvelkomið að fá aðgang að persónulega blaðrinu ef þú vilt.

Ég þarf reyndar að búa til kerfi þar sem menn geta sótt um lágmarksaðgang sjálfkrafa, þ.a. það þurfi ekki að senda mér póst og biðja beinlínis um það. Mig grunar að það sé aðeins of hár sálfræðilegur þröskuldur til að allir fari yfir hann sem myndu vilja lesa skrifin.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Re: Diary: More on the login system (Unnur)

2001-09-26 15:21
Ég er búin að vera að bíða mjög mjög lengi eftir að bjarni forriti svona dót, svo lengi að ég var byrjuð að íhuga að færa mig yfir á diaryland.com eða eitthvað svoleiðis til að geta falið einstaka færslur. Ég nefnilega lít ekki á dagbókina mína sem fjölmiðil heldur einmitt sem persónulega dagbók sem ég held á netinu mér til hægðarauka. Ég hélt nefnilega pappírsdagbók í mörg mörg ár og gallarnir við slíkt fyrirkomulag eru óteljandi. Þetta sem Gummi segir, um að ekki þurfi maður að skrifa gjörsamlega allt á vel við um blogg þar sem aðalmarkmiðið er að tjá sig um það sem manni finnst hljóma gáfulega þá stundina (moderate pun intended). En fyrir dagbók.....nei. Maður vill getað skrifað í dagbókina sína það sem manni liggur á hjarta og þeir hlutir eru yfirleitt ekki þess eðlis að maður vilji að hver sem er geti lesið þá. Samt myndi maður kannski vilja deila sumum hugleiðingum með ákveðnu fólki.

Ég hugsa, að þegar ég byrji að nota þetta nýja kerfi á dagbókina mína þá muni það ekki breyta henni mikið. Það eru góðar líkur á að allt sem hingað til hafi fengið að koma þar fram haldi áfram að vera opið öllum. Og hina hlutina fékk fólk hvort sem er ekkert að vita um, nema þessir örfáu sem ég trúði fyrir þeim í eigin persónu og sem er líklega nákvæmlega það fólk sem mun fá aukinn aðgang. Í raun veru verður það því bara ég sjálf sem mun verða eitthvað virkilega vör við þessa auknu skjölun.

Allavega, Unnur læra núna :-)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni