[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Már svarar... og ég svara. (Bjarni)

2001-09-24 14:39
Már svarar.

Mig grunar að Má gangi betur að skilja hvað ég er að gera og hversvegna ef hann hættir að hugsa um dagbókina mína sem útgáfutæki - það er aðeins eitt af mörgum hlutverkum þess. Það er heldur ekki að ástæðulausu að ég kalla þessar síður "dagbók" en ekki "vefleiðara". Verkfærið er kannski það sama (eða hefur verið hingað til), en tilgangurinn ekki.

En þetta er í raun allt aukaatriði. Ég er svakalega ánægður með breytinguna - mér finnst dagbókin mín strax gagnlegri.

Ég vona annars innilega að Már hafi rangt fyrir sér varðandi leyndarmálin og að það þurfi meira til að svekkja fólk og pirra heldur en þetta. Og ég vona að hann öskri ekki "nei, nei, leyndarmál vond og texti á vefnum kaldur og ópersónulegur og bjánalegur!" ef ég sendi honum einhverntímann notendanafn/lykilorð í von um hann lesi eitthvað persónulegt sem ég hef ákveðið að skrifa í dagbókina mína... ;-)

En nóg um þetta... veðrið er fallegt í dag og heimurinn góður.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni