[ Bjarni R. Einarsson / diary ]



Auðvitað er Microsoft skotspónn (Bjarni)

2001-05-09 18:44
Allir stórir aðilar sem njóta velgengni eru skotspónar. Það hefur mjög lítið með gæði aðilans að gera. Við höfum báðir rétt fyrir okkur - Microsoft er skotspónn og Microsoft er líka fyrirtæki sem gerir margt illa og á gagnrýni fyllilega skilið. Ég átta mig ekki alveg á hvort þú ert ósammála mér eða ekki, en þú hefur allavegna engin rök fært gegn þessu. :-)

Annars held ég að óbeit manna á Microsoft hafi nánast ekkert með ruslpóstinn á Hotmail að gera. Þeir sem senda ruslpóst eru glæpamenn sem ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og gróðavonin mest. Gríðarlegur fjöldi Hotmail notenda og lélegt ruslvarnarkerfi þar veldur því að glæpamennirnir leita þangað. Þeir myndu gera það alveg óháð því hver á Hotmail.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Gallar Hotmail (Hrafnkell)

2001-05-09 20:08
Kannski eruði Bjarni að tala um sitt hvorn hlutinn en þeir gallar á Hotmail sem Bjarni nefndi eru alveg óháðir ruslpósti. Það sem Bjarni nefndi voru alvarlegir öryggisgallar sem byggðu á "security through obscurity". Það vita allir (og er eitt af "lögmálum" tölvuöryggisfræða) að slíkt öryggi virkar ekki. Það á að gagnrýna þá hart fyrir slík vinnubrögð. Hotmail hefur verið breytt talsvert eftir Microsoft keytpi apparatið, m.a. hefur Microsoft Passport auðkenningarkerfinu verið bætt við (kynntu þér líka núverandi notkunarskilmála Hotmail og Passport þjónustunar, það er líka efni í en meiri gagnrýni). Í Passport kerfinu lá gallinn sem Bjarni talaði um.
<P>
Ruslpóst fá allir sem hafa tölvupóstfang. Eina leiðin til að reyna að forðast hann er að vera mjög íhaldssamur á að gefa póstfang sitt upp. Aldrei setja það beint á vefsíðu, aldrei gefa það upp þar sem þú þarft að fylla út form á vefsíðu annars aðilla osfr. Ég nota alltaf devil@hell.com ef ég er beðinn um að gefa upp netfang nema ég hafi sérstaka ástæðu til annars.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni