[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Re: Fátækt (Birgir Stefáns)

2010-04-11 14:41
Þetta er alveg satt hjá þér. Flest okkar glíma við lúxusvandamál, en því miður eru hinir til sem hafa það skítt án þess að hafa til þess unnið. En þú ert ekki á landinu en sérð hlutina í öðru samhengi og það er bara gott. Við gerum okkur nefnilega ekki alltaf grein fyrir því hvað við höfum það gott þrátt fyrir allt. Þarna suðurfrá sérðu kannski eymd, sem aldrei hefur sést og mun ekki sjást hjá okkur. Gangi ykkur allt í haginn á ykkar ferðum. Biddi


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Fátækt (Kjartan Þór)

2010-04-11 16:29
Ég held þetta sé nú reyndar mjög basic í rauninni, því fasteignabóla undanfarinna ára hefur gert það að verkum að fólk hefur í marga staði fáa kosti, það getur reynt að selja fasteignina eða bílana, en í dag er lítill markaður og verðið sem fæst því kannski ekki nærri þeim skuldum sem hvíla á henni, hinn kosturinn er að fara í gjaldþrot. Í báðum tilfellum situr skuldarinn eftir með bunka af skuldum því skuldir hverfa ekki við gjaldþrot, og einhverstaðar þarf fólk að búa og þar sem fasteignabólan keyrði verð á húsnæði langt upp fyrir það sem venjulegt fólk hefur ráð á að borga í raun þá er leiguverðið sömuleiðis langt yfir því sem fólk hefur ráð á að borga. Þeir sem eru í þessari stöðu eiga vissulega soldið bágt sér í lagi þar sem stór hluti þessa fólks fór út í þessar lántökur með allt of litlar upplýsingar, en þar sem ég sat hjá í þessu kapphlaupi og var í skóla þá skildi ég aldrei hvaðan fólk ætlaði að fá peningana til að greiða öll þessi lán til baka. Standardinn var bara kominn langt út fyrir allt velsæmi og mér finnst fólk vera svolítið að barma sér yfir því að hafa (ekki lengur) efni á að eiga stórt hús, tvo bíla (þar af annan stóran jeppa), sumarbústað, fellihýsi og fara tvisvar á ári til útlanda. Þessu fólki vorkenni ég lítið sem ekkert. Hins vegar er fólk þarna inn á milli sem hefur alla tíð búið í leiguhúsnæði, hafði lök kjör meðan brjálæðið gekk yfir og nær ekki að láta enda ná saman í dag vegna þess hvernig lánastofnanir og eigendur þeirra hegðuðu sér. Þetta fólk á samúð mína og það er vissulega til á Íslandi, en maður heyrir lítið af þessu fólki því það hefur alla tíð haft það skítt og því lítil breyting. Held að það sem þú ert að sjá utan frá gerast hér á klakanum kristallist svolítið í þessari sögu sem þú sagðir af betlurunum í borginni, það heyrist ekkert í þessum sem hafa það verulega skítt og enginn sér þá.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Fátækt (ella)

2010-05-01 21:17
Eins og talað út úr mínu hjarta.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Fátækt (Einar Jón)

2010-05-07 11:26
Sá þetta fyrst núna, en ég er alveg sammála þessu. Hér á Indlandi er 25% þjóðarinnar undir fátæktarmörkum (sem eru ca. 1000 sinnum fleiri en allir Íslendingar).
Mig minnir að skilgreiningin á fátæktarmörkum sé að lifa á innan við $2 á dag.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni