|
The following messages are replies to
a previous message.
|
|
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]
Hvað varðar Google að heimta allt ókeypis - aftur þykir mér það heldur ósennilegt. Þeir gætu vel hafa haft samband við ríkið og rætt hluti á þeim nótum, enda væri þjóðarhagur að komast í Google Maps og Google Earth. En þeir vita nú betur en að biðja fyrirtæki í einkarekstri um ölmusu. Kannski höfðu þeir samband og buðu ykkur ekki "nóg", en það er allt annar handleggur.
Ég veit nefnilega að Google kaupir kortagögn þegar það á við, en það skiptir auðvitað verulegu máli hvaða skilmálar fylgja kaupunum. Ef það eina sem er í boði er "borga per birtingu" eða eitthvað annað græðgismódel sem felur í sér mikla yfirbyggingu og skriffinsku, þá er mjög eðlilegt að menn segi bara nei takk.
Ísland er svo smátt og markaður okkar svo lítill, að það er mjög erfitt að réttlæta nein útgjöld í þessa átt, hvað þá að samþykkja skilmála sem myndu hefta getu fyrirtækisins til að einbeita sér að því að skrifa góðan og sveigjanlegan hugbúnað.
Athugaðu að færslan mín hér að ofan lýsir á engann hátt stefnu Google, þetta er bara mín persónulega skoðun og lýsing á hverskonar verkefni ég myndi stunda í mínum auka/frítíma ef ég væri í aðstöðu til þess. Þannig að þó ég vilji fá sem flest ókeypis (og rökstyðji hversvegna það væri í hag þjóðarinnar) þá má alls ekki túlka það sem stefnu vinnuveitanda míns.
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]