|
The following messages are replies to
a previous message.
|
|
Notkunarleyfi
Notandi má afrita stafræn LUKR-gögn yfir í tölvuminni eða tölvudiska og framleiða afleidd, stafræn gögn eða afurðir úr LUKR-gögnum. Hann má aðeins nota framantalin gögn sjálfur eða starfsmenn hans, en má ekki afhenda þriðja aðila afrit af eða veita þriðja aðila aðgang að stafrænum LUKR-gögnum og/eða afleiddum, stafrænum gögnum/afurðum, nema með sérstökum samningi við Landupplýsingadeild - LUKR. Notanda er hins vegar heimil sala og dreifing afurða á pappírsformi, sem unnar eru úr stafrænum LUKR-gögnum og gagnagjald hefur verið greitt af, en þau skilyrði eru sett, að á öllum slíkum afleiddum afurðum sé getið útgáfu- og höfundarréttar LUKR ("copyright") og einnig skal tilkynna Landupplýsingadeild - LUKR um slíka útgáfustarfsemi. Úttektarsamningurinn veitir notanda ekki rétt til að fá nýjar, uppfærðar og leiðréttar útgáfur af gagnasöfnum LUKR.
M.ö.o. þessi gögn eru semsagt gjörsamlega gagnslaus fyrir alla nýsköpun, nema nýsköpunin sé í formi pappírsútprentana. Maður getur auðvitað farið í heimsókn og reynt að semja um aðra skilmála, en það er algjörlega ójóst hvort og hvernig það ber árangur, hvað þá hver kostnaðurinn verður á endanum.
Og þetta eru bara gögn Reykjavíkur. Að búa til heildarmynd af landinu þegar það þarf að semja sérstaklega við hvert sveitarfélag, er gífurlega óspennandi tilhugsun.
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]