[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Re: Opið aðgengi að opinberum gögnum (Hjálmar Gíslason)

2008-04-25 14:48
Gott innlegg.

Það er líka annað sem kristallast mjög í tilfelli kortagagna.

Landmælingar eru ríkisstofnun sem - að um talsverðu leiti a.m.k. - er í samkeppni við einkaaðila. Kortagögnin sem stofnunin hefur byggt upp fyrir opinbert fé veitir þeim klárlega samkeppnisforskot og aðrir þurfa annað hvort að kaupa gögnin af þeim alldýru verði, eða byggja sjálfir upp sömu grunngögn og Landmælingar áður en hægt er að fara að vinna að virðisaukanum ofan á þann grunn.

Þetta stíflar auðvitað nýsköpun á þessu sviði. Í staðinn fyrir að nýþróunin "standi á herðum risans", stendur risinn að einhverju leiti á tánum á nýþróunaraðilunum.

Ef grunngögn Landmælinga stæðu öllum opin til að byggja á frekari virðisauka yrði það til þess að samkeppni myndi myndast um að búa til bestu upplýsingarnar ofan á kortin og birtingu á þeim, í stað þess að samkeppni sé um uppbyggingu grunngagnanna.

Við myndum þá einmitt sjá Ísland inni í Google Maps og Google Earth, inni í helstu gerðum GPS tækja og farsímaþjónusta o.s.frv, sem myndi skila sér í aukinni skilvirkni í íslensku þjóðfélagi (með betra aðgengi að landupplýsingum), auknum fjölda ferðamanna (sem myndu kynnast töfrum landsins í þessum þjónustum) og meira umferðaröryggi (með leiðsagnarbúnaði í bílaleigubíla) svo örfá dæmi séu tekin.

Ef Landmælingar verða einhverntíman einkavæddar (sem væri hið besta mál) þá væru skelfileg mistök ef grunngögnin yrðu ekki slitin frá og gefin "frjáls" á sama tíma.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Opið aðgengi að opinberum gögnum (Baldur McQueen)

2008-04-25 22:22
Merkilegt. Er það rétt hjá athuganda #1 að Landmælingar standi með þessu einnig gegn GPS-væðingunni? Óvíða væri meiri þörf á að geta notað GPS-ið til að slá inn póstkóða (myndi reyndar ekki virka á Íslandi) til að finna staði. Ættingi minn ætlaði t.d. í Breiðholtið í Reykjavík.....snarvilltist en var svo síðar sagt að hann hefði (að sjálfsögu!!!) átt að fylgja skiltum sem sögðu "Mjóddin" eða eitthvað svoleiðis. Er ekki allt í lagi? MJÓddin til að komast í BREIÐholtið!
     Re: Re: Opið aðgengi að op.. (Bjarni Rúnar)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Opið aðgengi að opinberum gögnum (Jarl)

2008-04-26 03:51
Gögn um gatnakerfi borga og bæja á Íslandi er reyndar mun auðveldara að nálgast frá bæjarfélögunum sjálfum en frá Landmælingum. Sem dæmi má nefna gögn frá LUKR http://eldey2.bv.rvk.is/lukr/ ásamt updráttum af aðalskipulagi sem bæjarfélögum er skilt að gefa út.
     Notkunarleyfi LUKR (Bjarni Rúnar)
         Re: Notkunarleyfi LUKR (Borgar)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Opið aðgengi að opinberum gögnum (Anonymous)

2008-04-26 13:09
Alveg sammála þér og óþolandi að Landmælingar skuli liggja á þessum gögnum eins og ormur á gulli.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Re: Opið aðgengi að opinberum gögnum (Loftmyndir)

2008-04-26 14:41
Smá leiðrétting hér. Landmælingar Íslands hafa þrátt fyrir nafnið nánast aldrei framkvæmt landmælinug á Íslandi. Stofnunin hefur í raun aldrei varið penningum til landmælinga eða kortagerðar heldur fer mest allt fé til stofnunarinnar í rekstur, þ.m.t. innheimtu á gögnum sem upprunalega fengust gefins frá Bandaríska hernum og Danska herforingjaráðinu. Stofnunin á því engin nothæf gögn fyrir Google eða aðra. Loftmyndir hafa hinsvegar búið til eina landsþekjandi kortagrunn sem til er hér á landi og skoða má á www.map24.is Búið er að kortleggja alla vegi, heimilisföng, sumarhús, vatnafar, strandlínu, jökla osfrv bæði í myndkortum og á vektorformi. Google hefur aldrei ljáð máls á neinu viðskiptasamodeli við Loftmyndir heldur viljað fá allt gefins til að geta gefið áfram og hagnast á auglýsingatekjum. Lausnin sem Loftmyndir hafa boðið hinu opinbera er að leggja niður núverandi rekstur Landmælinga og kaupa kortagrunn Loftmynda fyrir helming þess sem varið er til stofnunarinnar á hverju ári. Þar með yrðu gögnin public domain og öllum aðgengileg. Vandamálið við þessa lausn er að LMÍ halda uppi störfum úti á landi og því verður þeim aldrei fórnað þó svo þjóðin fái nákvæmlega ekki neitt fyrir skattpeninga sem varið er til stofnunarinnar á hverju ári.
     Re: Re: Opið aðgengi að op.. (Borgar)
     Re: Re: Opið aðgengi að op.. (Bjarni Rúnar)


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni