Sæll Bjarni,
Það er gott hjá þér að tengja á þessa grein, ég held að það sé margt til í því að margir geri sér ekki grein fyrir því að Tíbet fyrir tíma Kínverjanna var engin paradís.
Ég hins vegar er ekki einn þeirra. Ég styð málstað þeirra sem vilja frelsa Tíbet og það mundi ég ekki gera ef ég teldi að þarna risi klerkaveldi á nýjan leik. Af tvennu illu er þó alræðiskommúnismi betri en klerkaræðið. Alræðiskommarnir fokka þér þó bara upp hérna megin grafar.
Ég kynnti mér efnið sæmilega á sínum tíma og Dalai Lama virðist vera heiðarlegur þegar hann vill að nýtt sjálfstætt/sjálfstjórnar Tíbet verði með lýðræðislega kjörin yfirvöld, en ekki gamla lénsveldið.
Hvað varðar tengsl Tíbet og Kína í gegnum tíðina þá er það nokkuð gefið að þegar þau hafa verið þá hafi þau að mestu verið að nafni til. Staðsetning Tíbet bauð einfaldlega ekki upp á neitt sérstaklega náin tengsl við Kína.
Hvað varðar verðuga málstaði þá er það vissulega rétt að þeir eru misvel markaðssettir. Frelsis hreyfing Vestur sahara (sjá hér: http://en.wikipedia.org/wiki/Sahrawi_Arab_Democratic_Republic) er t.d. málstaður sem varla nokkur maður veit af. Þetta er ríki sem er búið að vera undir hernámi áratugum saman af ríki sem stundar skipulega mannflutninga á svæði þess til þess að þurka út þjóðareinkennin. Þetta er sæmilega stór málstaður í Suður-Ameríku, enda eru íbúar Vestur sahara eina múslimaþjóðin í heimi þar sem megin tungumálið er spænska.
Af hverju engin man eftir Vestur sahara á meðan allir eru brjálaðir yfir Palestínu, Írak og Tíbet, veit ég ekki... kannski er Marakó ekki nógu ógnvekjandi vondur kall...
En já... þetta voru bara svona random hugleiðingar...
Kv. Þórir Hrafn
Re: Re: Free Tibet?
(Anonymous)
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]