[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Re: Re: Re: Re: Óviðfelldnar skoðanir á bensínvæli (Bjarni Rúnar)

2008-04-05 15:46
Ísland vissulega er í sérstöðu hvað þetta varðar.

En að breyta yfir í rafmagnsfarartæki breytir eðli vandans talsvert, því það gerir mönnum einmit kleyft að nýta aðra orkugjafa en olíu.

Og þó menn haldi áfram að nota olíu eða kol í mörgum tilfellum, þá afmarkast skyndilega losunin við "nokkra" vel afmarkaða staði þar sem hægt er að taka upp tækni til að binda kolefnið með einhverjum hætti. Menn eru byrjaðir að gera þetta nú þegar á nokkrum stöðum - það á auðvitað eftir að koma í ljós hvernig það reynist, en svona tækni verður mun fyrr fýsileg á stórum, kyrrstæðum orkuverum heldur en á litlum hreyfanlegum farartækjum.

Og þó ekkert af því virkaði ... þá væri barast samt ávinningur að færa mengunina burt frá svæðum þar sem fólk býr og börn leika sér.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni