|
The following messages are replies to
a previous message.
|
|
Það á að vera strengur yfir allar helstu umferðaræðar, sem bílarnir sjúga orku úr þegar þeir keyra þar og rafhlöður í bílunum sem duga til að koma mönnum heim í hlað og allar styttri ferðir. Ef menn ætla að vera latir að setja upp strengi og keyra meira á rafhlöðum, þá þurfa bensínstöðvar að bjóða upp á rafhlöðuskipti svo þú getir losað þig við tómlegan geymi og fengið fullan í staðinn á sama tíma og tekur í dag að fylla tankinn. Einhver þarf að setjast niður og reikna út hvor kosturinn eg hagkvæmari.
Þetta er ekki flókin framtíðarsýn - ég held ég hafi verið byrjaður að tala um þetta þegar ég var sirka tíu ára og skoðanir mínar hafa bara styrkst síðan. :-P Þetta krefst engra tækniframfara.
Það þarf bara vilja til verksins; ríkið þarf að koma upp strengjum og styrkja landsmenn til að breyta bílaflotanum.
Með svona einföldu kerfi er ansi fátt annað en leikföng jeppakarlanna og öryggistæki björgunarsveita, sjúkraflutninga og lögreglu sem ekki geta keyrt á rafmagni með tækni sem hefur verið til taks í marga áratugi.
[ Up ]
[ Permanent URL ]
[ Reply ]