[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Re: Re: Re: Óviðfelldnar skoðanir á bensínvæli (Bjarni Rúnar)

2008-04-01 22:44
Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að meirihluti þeirra sem voru að mótmæla á vegum 4x4 klúbbsins séu að hafa áhyggjur af lúxúsvöru. :-) Þessir bílar eru í langflestum tilfellum leikföng.

Atvinnubílstjórarir eru aðeins annar handleggur; en þeir munu auðvitað bara velta kostnaðinum áfram til þeirra sem kaupa þjónustu þeirra.

Þeir eru ekki í neinni raunverulegri hættu (nema þeir hafi gert bindandi samninga til lengri tíma sem taka ekki tillit til breytilegs rekstrarkostnaðar), en neytendur eru það.

Og hvað þá varðar er fullkomnlega eðlilegt að spyrja hvort eðlilegast sé að lækka skatta á bensíni frekar en einhverju öðru. Með því að taka bensínið fyrir sérstaklega er verið að bæta hlutfallsleg kjör bílafólks á kostnað þeirra sem lifa án bíls og hefðu annars getað notið lægri tekjuskatts eða matarskatts.


Up ]   [ Permanent URL ]   [ Reply ]

Nýtt í dagbókinni