[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Two men with a ladder

2008-05-08 13:45

Last night, looking out over the mishmash of shacks and yards and fences behind our house, I noticed two men with a ladder.

They propped the ladder up against a shack right behind our house, deliberated a bit and then apparently changed their mind, taking the ladder down and walking off with it.

An hour or more later, around 1 am, I heard noises outside so I looked out the window again. Someone was moving around in the yard behind the abandoned house nearest to our place, right by the shack the men had been preparing to climb earlier. Seems they had come back.

They made quite a bit of noise, but it was so dark it was impossible to tell what they were up to. They weren't carrying flashlights.

I debated with myself whether to call the cops. If they were just looking for a place to squat, I don't really feel that's a wrong thing. If they're just exploring, as I might be tempted to do on one of my sillier days, that's also fine. No cause for alarm. But it didn't sound like they were trying to break into the abandoned building. And why no lights? Very odd indeed.

What if they were planning to set the place on fire for insurance reasons? That would endanger the whole neighborhood.

As this occurred to me, and I was coming to the conclusion that I should call the cops, the men climbed out of the yard and up onto the roof of the shack behind it. At the same time, a group of slavic-sounding men from the house next to the abandoned one switched on bright lights and came out into their yard to see what was going on.

The two men crept unseen across the roof, climbed down the ladder and walked away with it.

A couple of minutes later, I saw them reappear in an alley a bit further away. Without the ladder. They'd left it behind. Were they planning to return a third time?

At this point, far too late, I called the cops and told them what I'd seen.

Then I went to bed.

...

I don't know if they came back a third time, but I think I'll go see if that ladder is still there.

     Re: Two men with a ladder (Óli Jens)
     Drug pickup? (Bjarni Rúnar)

Permanent URL ]   [ Reply ]

Pilluáminningin og Nova

2008-05-05 22:50

Jæja, þá er ég búinn að koma Nova inn í Pilluáminninguna.

Eða ég tel mig allavegna vera búinn að því; hafandi ekkert Nova númer til að prófa, get ég ekki verið alveg viss. :-)

Ég býst við að tengiliðir mínir hjá Nova prófi kerfið fyrir mig á morgun, en ef einhver lesandi vill verða fyrri til og láta mig vita hvernig gengur, þá væri það fallega gert.

Permanent URL ]   [ Reply ]

My birthday present

2008-04-30 14:41

After exactly two years, I'll be exactly twice as old as the open World Wide Web... for some definition of "the open World Wide Web".

I had no idea I was getting such a nice birthday present fifteeen years ago. I was probably more concerned with getting my drivers' license... but in hindsight it's probably one of the best I've ever gotten. :-)

Thanks Tim!

     Re: My birthday present (Skrimsla)
     Re: My birthday present (Urður)
     Re: My birthday present (Helgi Briem)
     Til hamingju með afmælið :) (Fríðafrænka)
     Re: My birthday present (Sigga)
     Re: My birthday present (Már Örlygsson)

Permanent URL ]   [ Reply ]

herrabre.blog.is

2008-04-27 15:36

Jæja, ég er loks orðinn virkur þáttakandi í lokuðum tuðheimi MBL.is.

Freistingin að geta gert sýnilegar athugasemdir við fréttir vefsins bar sjálfstæðisþörfina mína ofurliði. Ég er svona að íhuga hvort ég komi mér upp einhverskonar sjálfvirku apparati sem afritar færslur þaðan og hingað inn...

Kemur í ljós. :-)

Í millitíðinni hef ég einfaldlega bætt blog.is bloggið við sameinaða RSS strauminn minn: http://bre.klaki.net/u/?bjarni.rss

     Re: herrabre.blog.is (Kristinn Kr..)
         Re: Re: herrabre.blog.is (Bjarni Rúnar)
     Re: herrabre.blog.is (Unnur)
         Re: Re: herrabre.blog.is (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: Re: herrabre.blog.is (Sonja)

Permanent URL ]   [ Reply ]

Opið aðgengi að opinberum gögnum

2008-04-25 13:36

Mér finnst gaman að sjá að það er komin einhver umræða af stað um hvernig skuli beita höfundarrétti til að "vernda" hugverk unnin af opinberum stofnunum.

Nú hef ég mest lítið til málanna að leggja, annað en að lýsa mig sammála Hjalla og Salvöru: mér finnst að gögn sem búin eru til með almannafé ættu að vera gefin út með þeim hætti að almenningur geti haft sem mest not af þeim.

Ég á t.d. erfitt með að sjá hvaða hag þjóðin hefur af því að ríkið beiti höfundarrétti til að takmarka aðgang að gögnum Landmælinga: þetta verður bara til þess að almenningur þurfi að borga tvisvar fyrir öll kort, einusinni með sköttum og svo aftur með gjöldum til Landmælinga.

Kannski er með því verið að finna einhverskonar jafnvægi milli þess að ríkið borgi og að þeir sem hafi mest not af gögnunum borgi, sem er að sumu leyti eðlileg markmið.

Ókosturinn við þetta er hinsvegar sá að þetta setur óþarfa stein í götu þeirra sem vilja gera eitthvað nýtt og óvænt við gögnin. Nýsköpun er heft.

...

Tökum nærtækt dæmi: Google Maps.

Nú vinn ég hjá Google og má nota 20% af tíma mínum til að sinna "gæluverkefnum". Eitt sem mér hefur af og til dottið í hug er að reyna að koma íslenska gatnakerfinu inn í Google Maps. Það væri rosalega gagnlegt! Kort á vefnum, kort í gemsana okkar, kort á vefsíðum íslenskra fyrirtækja (hver sem er getur skellt Google Maps korti inn í sína eigin síðu, sjá hér). Mjög spennandi!

Það vill líka svo til að gögnin eru öll til: Landmælingar eiga mjög fullkomna gagnagrunna sem innihalda allt sem þarf og meira til.

Hinsvegar hef ég (enn sem komið er) ekkert gert nema tala um þetta. Af hverju? Af því að aðgengi að kortum Landmælinga er takmarkað og það þarf að borga fyrir afnot af þeim.

Til að láta þetta gerast þyrfti ég semsagt að finna og vekja áhuga þeirra innan Google sem hafa leyfi til að skrifa undir samninga og eyða peningum, koma þeim í samband við Landmælingar og bíða svo átekta eftir að fá gögnin í hendurnar.

Svo þyrfti að koma þessu inn í rétt ferli innanhúss til að borga reglulega fyrir uppfærslur og koma þeim inn í kerfið.

Enn sem komið er hef ég ekki nennt því; skriffinnskan hefur gert þetta að of stóru verkefni til að ég nenni að takast á við það í hlutastarfi. Mér finnst það miður, en ég hef fundið önnur viðráðanlegri verkefni til að nota þennan aukatíma í.

Ef ég gæti bara sótt gögnin af vefnum, myndi ég gera það og byrja bara að vinna.

Athugið að þetta snýst ekki endilega um peningana: það má vel vera að Google væru alveg fúsir til að borga uppsett verð Landmælinga. Ég veit það ekki! Kjarni málsins er að þetta aukaskref, að þurfa að semja og þurfa að borga, gerir allt pínulítið erfiðara. Og stundum er "pínulítið erfiðara" nóg til þess að hugmynd verið ekki að veruleika.

...

Íslendingar eru sniðugir og hugmyndaríkir, en ekki allir þeirra eru til í að stofna fyrirtæki og eyða peningum í að láta sniðuga hugmynd rætast. Sem dæmi: hversu margir námsmenn í tölvunarfræðum myndu gera sniðuga hluti við opna kortagrunna eða opin orðasöfn, ef þeim stæði það til boða?

Án opins aðgengis að þessum gagnasöfnum erum við að missa af allskonar nýsköpun.

Ég vil endilega sjá það breytast.

     Re: Opið aðgengi að opinbe.. (Hjálmar Gís..)
     Re: Opið aðgengi að opinbe.. (Baldur McQueen)
         Re: Re: Opið aðgengi að op.. (Bjarni Rúnar)
     Re: Opið aðgengi að opinbe.. (Jarl)
         Notkunarleyfi LUKR (Bjarni Rúnar)
             Re: Notkunarleyfi LUKR (Borgar)
     Re: Opið aðgengi að opinbe.. (Anonymous)
     Re: Opið aðgengi að opinbe.. (Loftmyndir)
         Re: Re: Opið aðgengi að op.. (Borgar)
         Re: Re: Opið aðgengi að op.. (Bjarni Rúnar)

Permanent URL ]   [ Reply ]

Comedy Sunburn

2008-04-19 16:20

So I've been at the annual Google/Europe ski trip for the past few days. On my first day, I made a little mistake, much to the amusement of my coworkers:

"Comedy sunburn", they cried! And laughed. And pointed.

I had so much fun snowboarding that I didn't care. It's been an amazing trip. :-)

Update: Heh, looks like we got out of there just in time...

     Re: Comedy Sunburn (Óli Jens)
     Re: Comedy Sunburn (Annie Rhiannon)
     Re: Comedy Sunburn (mary)
         Re: Re: Comedy Sunburn (EinarI)
     Re: Comedy Sunburn (Brynja)
     Re: Comedy Sunburn (Marcia)
     Re: Comedy Sunburn (mary)
     Re: Comedy Sunburn (Nori)

Permanent URL ]   [ Reply ]

Fleiri nýlegar færslur:

Færslusafnið geymir restina...

Í dag fyrir einhverjum árum:

  •    2001    Vitnað í mig í mogganum
  •    2006    First post!!